news

Baráttudagur gegn einelti

08 Nóv 2018

Vegna alþjóðlega baráttudagsins gegn einelti sem er í dag komu nokkrir nemendur af unglingastigi grunnskólans í samverustund og lásu bók fyrir leikskólanemendur. Meðfylgjandi myndir eru frá því í morgun í samverustund á Kisudeild.

Á morgun, 9. nóvember, munu nemendur leik- og grunnskóla efna til sameiginlegrar vinnustundar í grunnskólanum. Þar munu allir nemendur vinna saman að verkefni til að vekja athygli á einelti og sýna samstöðu gegn því. Nemendur munu búa til vináttutré, þar sem þeir rekja hendur sínar á blað, lita og klippa síðan út. Framan á hendina mega þau gjarnan skrifa nafnið sitt eða upphafsstafina sem það geta. Með því að hengja hendina á tréð erum við að skrifa undir sáttmála um að standa upp gegn einelti, lofa að taka ekki þátt í því og láta vita ef við verðum vitni eða verðum fyrir einhverskonar einelti.