news

Bleikur dagur

16 Okt 2020

Það var bleikur ljómi yfir leikskólanum í dag þegar flestir nemendur og starfsfólk skólans klæddust einhverju bleiku eða voru með eitthvað bleikt á sér. Með þessu viljum við leggja verkefninu Bleikur október lið en 16.október er bleikur dagur á Íslandi til þess að vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini hjá konum og átaki Bleiku slaufunnar.