news

Deildarstjóri óskast

04 maí 2017

Laus er til umsóknar staða deildarstjóra til eins árs við leikskólann Glaðheima á deild fyrir 4-6 ára börn. Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 börn. Í leikskólanum er unnið með lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu. Mikil áhersla er einnig lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun, áskilin
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Stundvísi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. september 2017.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólans Hlíðarstræti 16 eða í tölvupósti gladh@bolungarvik.is Umsóknafrestur er til 31. maí 2017

Allar frekari upplýsingar veitir Ragnheiður í síma 456-7264 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is.

Heimasíða leikskólans er http://gladheimar.leikskolinn.is