Eldgamla Ísafold
03 Des 2018
Bangsadeild bauð til vinastundar föstudaginn 30. nóvember. Í lok vinastundarinnar mynduðu öll börn leikskólans kór og sungu lagið Eldgamla Ísafold sem þau hafa verið að æfa síðastliðnar vikur. Tekið var myndband af æfingunni sem sjá má með því að smella á eftirfarandi tengil: https://sway.office.com/qVonfMqaBqC54Gzg
Hundrað ára fullveldisafmæli Íslands var fagnað þann 1. desember í Ráðhússal Bolungarvíkurkaupstaðar og sungu börnin Eldgamla Ísafold við það tilefni.