news

Foreldrakaffi

02 Des 2021

Árlega bjóða nemendur leikskólans foreldrum sínum í jóla-foreldrakaffi. Föstudaginn 3. desember verður foreldrakaffi þar sem boðið verður uppá jólasmákökur sem börnin tóku þátt í að gera, jólaföndur, kaffi og safa.

Svo allir fái notið sín sem best og við stefnum ekki of mörgum saman hverju sinni þá hafa deildarstjórar skipulagt kaffið með tilliti til þess og sent tölvupóst til foreldra þess efnis.

Hlökkum til þess að sjá ykkur!