news

Foreldrakaffi

05 Des 2018

Föstudaginn 7. desember verður foreldrakaffi í leikskólanum frá kl. 07:30 - 9:00. Foreldrum er frjálst að mæta hvenær sem er á þessum tíma og mega þeir staldra við eins og þeim hentar.

Foreldrakaffi er hugsuð sem notaleg morgunstund hjá foreldrum og börnum þeirra hér í leikskólanum. Boðið verður uppá kaffi og smákökur sem nemendur skólans hafa bakað. Á hverri deild er boðið uppá smá jólaföndur við hæfi og piparkökumálun.

Við í leikskólanum hlökkum til að sjá sem flesta.