news

Gjöf frá foreldrafélaginu

17 Jan 2019

Foreldrafélag leikskólans gaf leikskólanum 1L te ketil úr hertu álinú á dögunum. Ketillinn á eftir að koma sér vel í útikennslu í leikskólanum en nemendur og kennarar skólans fara reglulega í Bernódusarlund.

Í Bernódusarlundi höfum við reglulega kveikt eld í eldstæði sem við eigum, hitum vatn og kakó, pyslur og brauð. Bernódusarlundur hentar vel í náttúru- og umhverfismennt þar lendum við alltaf í nýjum og nýjum ævintýrum.

Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir góða gjöf.