news

Haustið

09 Ágú 2016

Nú er leikskólastarfið að fara á fullt eftir sumarfrí. Börn og starfsfólk koma hress til starfa eftir gott frí. Núna eru börn í aðlögun milli deilda og í næstu viku koma ný börn í leikskólann og svo koma fleyri ný börn í lok mánaðarins. Nýtt starfsfólk er að byrja í skólanum á næstu dögum, Thelma Kristín er byrjuð að starfa á Bangsadeild og Annika Behensen byrjar 1. september á Bangsadeild og Hildur Sverrisdóttir byrjar svo í Lambhaga 22. ágúst.