news

Kaffihúsadagur

09 Mar 2018

Það var glatt á hjalla í Glaðheimum í dag þegar kaffihúsastemmning var á hverri deild.

Bangsadeild var á "kaffihúsi" í sal þar sem þau gátu valið um ýmsar kræsingar sem í boði voru.

Kisudeild hóf undirbúning á kaffihúsadeginum fimmtudaginn 8. mars þegar bakaðar voru formkökur í ýmsum litum. Börn og starfsmenn deildarinnar nutu sín í morgun á Kisudeildarkaffihúsinu.

Í Lambhaga voru bakaðar meðal annars lummur og vöfflur svo allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi á kaffihúsinu þar.

Á kaffihúsi í sal (Bangsadeild)

Bakstur á Kisudeild

Lummubakstur í Lambhaga