news

Kveðjukaffi

16 Ágú 2018

Miðvikudaginn 15. ágúst, komu starfsmenn leikskólans saman á sal þar sem boðið hafði verið til kaffisamsætis.

Kaffisamsætið var haldið til heiðurs tveggja starfsmanna skólans sem samanlagt hafa starfað við skólann í 59 ár. Halldóra Þórarinsdóttir (Dóra) hefur starfað við leikskólann í 28 ár og Soffía Guðmundsdóttir í 31 ár. Hafa þær stöllur gengið í flest öll störf innan skólans.

Fyrir hönd starfsmanna leikskólans óskuðu skólastjórnendur þeim Dóru og Soffíu alls hins besta og þökkuðu þeim fyrir ánægjulegt samstarf í gegnum árin um leið og þeim voru færðar kveðjugjafir.