news

Sköpun og menning í tilefni af degi leikskólans

10 Feb 2017

í dag kemur síðasta myndbandið okkar í þessari stuttu kynningu á starfinu okkar í Glaðheimum. Í dag ætlum við að sýna ykkur hvernig við vinnum með sköpun og menningu. Við náum því miður ekki að sýna ykkur allt sem við gerum en við náum að sýna flesta viðburði, hátíðir og hefðir sem við höldum upp á í leikskólanum. Við gerum mikið í því að skapa sjálf það sem okkur langar í og höfum alltaf að leiðarljósi að vinnuferlið skiptir meira máli en útkoman. Í Glaðheimum gera börnin sinn eigin öskudagsbúning og allir gera jólagjöf sem þá langar að gera og velja hverjum þeir gefa hana. Í myndbandinu má sjá nokkar jólagjafir t.d. brúðurnar tvær og armbandið.

Gjörið þið svo vel, góða skemmtun.

4dagurleikskolans1.wmv

með kærri kveðju nemendur og kennarar Glaðheimum.