news

Sveitaferð

26 maí 2021

Föstudaginn 21. maí fóru nemendur og kennarar leikskólans í sína árlegu sveitaferð á Geirastaði þar sem mæðgurnar Margrét og Emilía tóku á móti okkur. Emilía er kær vinkona okkar þar sem hún hefur starfað í leikskólanum í nokkur ár. Á Geirastöðum voru kindur með litlu lömbin sín og hestar. Sumir þurftu að sýna hugrekki að vera ófeimin við dýrin, stór og smá. Það má heldur ekki gleyma að sýna dýrunum vinsemd og virðingu og teljum við okkur hafa tekist vel til hvað það varðar. Það er ekki síður spennandi þáttur í sveitaferð að fara á milli leikskólans og Geirastaða í rútu, allir með beltin spennt!