news

Umsókn fyrir skólaárið 2018-2019

27 Feb 2018

Foreldrum sem óska eftir leikskóla fyrir börn sín skólaárið 2018 – 2019 er bent á að mikilvægt er að skila inn umsókn um leikskóla fyrir 1. apríl n.k. Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólastjóra eða á rafrænu formi. Algengast er að börn hefji leikskóladvöl á tímabilinu júní til september ár hvert, þegar börnin sem hefja grunnskólagöngu að hausti hætta. Einnig er mikilvægt að benda á að sé umsókn skilað eftir 1. aprí, má allt eins búast við að innritun verði þá þegar lokið og leikskólinn þá full skipaður fyrir skólaárið 2018-2019.

Stefnt er að því að upplýsingar um innritun barna liggi fyrir eigi síðar en í maímánuði.

Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum eða sækja um rafrænt á http://gladheimar.leikskolinn.is/Upplysingar/Leiks...