news

Umsókn fyrir skólaárið 2019-2020

27 Feb 2019

Foreldrum sem óska eftir leikskóla fyrir börn sín skólaárið 2019 – 2020 er bent á að mikilvægt er að skila inn umsókn um leikskóla fyrir 1. apríl n.k. Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólastjóra eða á rafrænu formi. Algengast er að börn hefji leikskóladvöl á tímabilinu júní til september ár hvert, þegar börnin sem hefja grunnskólagöngu að hausti hætta. Einnig er mikilvægt að benda á að sé umsókn skilað eftir 1. aprí, má allt eins búast við að innritun verði þá þegar lokið og leikskólinn þá full skipaður fyrir skólaárið 2019-2020.

Stefnt er að því að upplýsingar um innritun barna liggi fyrir eigi síðar en í maímánuði. Þeir foreldrar sem nú þegar hafa sótt um leikskólapláss þurfa ekki að gera það aftur.

Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum eða sækja um rafrænt á

https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSeXeMrdibSuIUMmtxG4h1GcawCS37Ast7-agN65fjH8mo_BJA/viewform