Útskrift 2013 árgangs
31 maí 2019
Nú þegar sumarið er að hefjast fer að líða að kveðjustund hjá elstu börnum leikskólans sem hefja nám í grunnskóla í haust. Í dag var útskrift og var farið í heimsókn á slökkvistöðina og þaðan alla leiðina í Súðavík þar sem farið var í Melrakkasetrið. Hamborgarar voru grillaðir í Raggagarði á meðan nemendurnir nutu sín í leik. Þegar komið var aftur í leikskólann var farið í vatnsblöðrustríð og að því loknu var útskriftarstundin. Núna kveðja börnin leikskólann eitt af öðru og halda á vit ævintýranna utan hans. Þetta er glæsilegur hópur barna sem eru tilbúin að takast á við ný og krefjandi verkefni.
Takk fyrir samveruna!
Þú ert hugrakkari en þig grunar,
snjallari en þú heldur
og sterkari en þér sýnist.