news

Útskriftarhópurinn

09 Jún 2016

Þriðjudaginn 31. maí var útskrift elstu barna leikskólans. Slökkvilið Bolungarvíkur tók á móti börnunum þar sem þau fengu að upplifa það að ganga í gegnum reykfyllt herbergi ásamt því að sprauta vatni úr brunaslöngu. Björgunarsveitin Ernir tók líka á móti börnunum þar sem þau fengu að skoða þann búnað sem björgunarsveitin á. Það var svo notalegt hádegi sem börnin áttu saman með starfsmönnum leikskólans á Einarshúsi þar sem allir gæddur sér á Bennabita.
Við viljum þakka börnunum fyrir góða samleið í gegnum leikskólann og óskum við þeim alls hins besta í framtíðinni.

Þú ert hugrakkari en þig grunar,

snjallari en þú heldur

og sterkari en þér sýnist.