Skóladagatal leikskólans Glaðheima
Skóladagatal er gert á hverju ári, þar eru skráðir helstu viðburðir, starfsdagar og fundir fyrir komandi skólaár. Dagatalið er unnið af kennurum skólans og er lagt fyrst til samþykktar í foreldraráði og síðan í fræðslumála- og æskulýðsráði Bolungarvíkurkaupstaðar.