news

Breyting á skóladagatali 2023-2024

05 Mar 2024

Stjórnendur leikskólans óskuðu eftir breytingu á skóladagatali sem hefur verið samþykkt af foreldraráði leikskólans og fræðslumálaráði.

Breytingin er sú að við munum opna kl 10 daganna 21 mars og 17 maí í stað þess að loka kl 14 eins og er á núverandi skóladagatali.

Óskað var eftir þessari breytingu til þess að sjá hvort tíminn frá kl 8-10 muni nýtast starfsfólki betur heldur en tíminn frá kl 14-16. Upphaf funda og annarar vinnu á þessum tíma hefur ítrekað frestast til 14:30 vegna þess að húsið er ekki orðið tóm fyrr en þá. Þetta eru mikilvægir tveir tímar fyrir starfsfólk til þessa að halda starfsmannafundi, deildarfundi og endurmenntun.