news

Haustfundur 17. ágúst

11 Ágú 2022

Góðan dag.

Miðvikudaginn 17. ágúst lokar leikskólinn kl. 14.00. Klukkan 14.30-16 er svo haustfundur þar sem við bjóðum foreldrum að eiga samtal við okkur um starfið í vetur og skoða leik- og námsefni. Gunnþór starfandi leikskólastjóri verður á staðnum ef einhverjir vilja fræðast um fyrirkomulag stjórnunar og stuðningsnets skólans.

Síðasta vetur var skólanámskráin endurskoðuð og við hvetjum foreldra til þess að kynna sér hana. Hér er hlekkur á skólanámskrá 2022.

Hlökkum til að hitta ykkur og verið velkomin í Glaðheima.