news

Starfsfólk óskast

24 Ágú 2022

Leikskólakennarar/starfsfólk óskast

Lausar eru til umsóknar stöður við leikskólann Glaðheima í Bolungarvík. Við erum að leita að leikskólakennurum eða starfsfólki með aðra menntun eða reynslu sem nýtist í starfi. Starfshlutfall er samningsatriði.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu eða önnur menntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum kostur

  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður

  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra

  • Stundvísi

  • Hreint sakavottorð

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ eða viðeigandi stéttarfélagi. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað í tölvupósti gladh@bolungarvik.is

Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2022.

Allar frekari upplýsingar veitir Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson starfandi leikskólastjóri í síma 699-1303 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 nemendur. Í leikskólanum er unnið með heilsueflingu og lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu. Mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu.

Heimasíða leikskólans er gladheimar.leikskolinn.is