news

Tannverndarvika

03 Feb 2023


Vikuna 30 janúar til 3 febrúar var tannverndarvika hjá okkur í Glaðheimum. Þessa viku er lögð áhersla á umræður og vinnu um tannvernd og tannumhirðu. Að því tilefni fengum við heimsókna frá Katrín Uglu tannlækni í Bolungarvík.

Hún kom til okkar og sáu börnin skemmtilegt myndband um tannvernd og tannhirðu, þau spurðu spurninga og fengu tannbursta að gjöf. Við þökkum Katrínu Uglu fyrir að koma til okkar með fræðslu.