news

Leikskólinn fær gjöf

16 Nóv 2016

Kvennadeild slysavarnarfélags Landsbjargar Bolungarvík færði leikskólanum hávaða mæli að gjöf. Mælirinn virkar þannig að á honum er mynd af grænu eyra ef allt er gott en það verður gult og rautt ef hávaðinn verður of mikill. Tækið getur kennt börnunum að stjórna hávaðanum, þau geta auðveldlega fylgst með því hvort havaðinn sé of mikill og hjálpast að í að lækka hann. Eryað er núna á Kisudeild en fer svo næst í Lambhaga. Leikskólinn þakkar Kvennadeildinni fyrir þessa veglegu gjöf.