news

Desember í Glaðheimum

05 Des 2023

Í desember er nóg um að vera hjá okkur í Glaðheimum þó við reynum að halda góðri rútínu. Það er gott að brjóta aðeins upp hversdagsleikann. Það verður haldinn vasaljósadagur, foreldrum er boðið í kaffi og jólaföndur og höldum við okkar árlegu jólastund þar sem er dansað í kringum jólatréð, jólasveininn kíkir í heimsókn og við borðum jólamat.

Á mánudögum í desember höldum við aðventustund í salnum þar sem við hittumst og syngjum saman og kveikt er á aðventukerti. Fyrsta mánudag í aðventu kom Magnús til okkar, söng og spilaði. Það vakti mikla lukku hjá börnum og starfsfólki. Takk fyrir komuna.

8. desember

- Foreldrakaffi frá 7:45 - 9:30

15. desember - lokar kl 14.

- Jólastund, betrifatadagur.

22. desember

- Jólafatadagur. Hvað áttu til: sokka/húfu/peysu/buxur :)